Emma Ósk, Axel Páll & Þórhildur Karen
Velkomin í heimsókn á síðuna okkar :)

Við vorum að læsa síðunni okkar en endilega sendu mömmu og pabba póst eða sms til að fá leyniorðið ;) Það er nafnið á afa okkur, mömmumegin - gælunafnið hans.
Emma Ósk fæddist á Landsspítalanum þann 31. ágúst 2005 kl:06:50 eftir 42 vikna meðgöngu
og var með eindemum hárprúð og fögur.
Hún var rúmlega 14 merkur eða 3635 grömm og 52 sentimetrar.
Hárið hennar var svart þegar hún fæddist og augun dökk.
Emma hefur verið þæg og góð alveg síðan hún fæddist og alltaf alveg ofsalega dugleg.
Hún er mjög skapgóð og skemmtileg og mamma og pabbi segja að hún sé bara alveg fullkomin ;)
Axel Páll fæddist á Landsspítalanum þann 15. ágúst 2007 kl:01:23 eftir
40 vikna og 3 daga meðgöngu.
Hann var rúmlega 12 merkur eða 3135 gr og 50 cm.
Hann var með skolleitt hár og blá augu sem urðu fljótt græn
og auðvitað alveg langflottastur. Hann er algjör ljúflingur og að sjálfsögðu alveg sérlega klár og skemmtilegur eins og stóra systir.
Þórhildur Karen fæddist 17. nóvember 2010 kl. 13:15 eftir 40 vikur og 4 daga.
Hún var með dökkt hár sem lýsist með hverjum deginum og blá augu.
Hún er minnsta músin á heimilinu og er algjör dásemd sem bæði foreldrarnir og stóru systkinin eru svo ánægð með.
Mamma heitir Eva Pálsdóttir og pabbi heitir Gunnar Jónsson.
Við búum öll saman í Kópavoginum.
Svo eigum við yndislegar ömmur og afa, fullt af frændum og frænkum og langömmu og fullt af góðum vinum.
Við erum sem sagt alveg svakalega rík og heppin systkini!
